JA ICH SPRECHE ALLES TUNGENMALEN
WAS SAGEN SIE BITTE..
ICH HABE SETTE IN ZWEI ALBUMEN ON MINE SIDE FRA DAS BRULLUP UND DAS PARTÍ HOS GUÐRÚN ÖSP.
I MORGEN HABE ICH SEIMENKLUBB HOS MIG OM 20.30-21.00. SIE KOMMEN ALLE, ICH HABE DIE SMS SENT.
DANKE SHÖN BITTE.
FRAU EVA RUZA, DAS BOMB
Posted at 01:32 am by kellingarnar
Permalink
Okei stúlkur - fariði að pakka ofan í tösku !
Því það eru aðeins 49 vikur og 2 dagar þangað til við förum ÖLL SAMAN til Júgó!! Ó já ég er að fíla það í tætlur! Ég veit nú ekki mikið um þennan stað en núna á ég eftir að ofsækja Evu Ruzu dag sem dimma nótt í upplýsingaleit !
Sorry krakkar mínir en þið eruð að fara að ferðast með skiplulagsóðu - ferðlaga-planner-crazy-Katy.. það gæti verið erfitt :| Ég er strax farin að skoða hótel og veitingastaði og skemmtistaði og strendurnar og bílaleigurnar og sólaráburðar-sölu og kokteilblandara og marg fleira!
Sjáiði

Ekki fallegt - ooooooh
Og svo athugaði ég veðrið líka - og í dag er hvorki meira né minna en 31 stiga hiti og heiðskýrt!
Jæja ég er farin að skoða landakortið betur - stay tuned!
Katrín grenjuskjóða
Posted at 02:43 pm by kellingarnar
Permalink

GUFFA GULL Á AFMÆLI Í DAG... JEEEJ.. ENN EIN ORÐIN TUTTOGÞRIGGJA.... =)
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN SKVÍS...
-EVA MARÍA-
Posted at 12:54 pm by kellingarnar
Permalink
Æ hvað ég vorkenni ykkur öllum þarna á klakanum í kuldanum. Það er alveg búið að muna eithvað um 20 gráðum á hitanum hér í Danmörku og á Íslandi undanfarna daga. En þið skuluð ekki örvænta! Hún Sóla er að koma með sólina á mánudaginn. Ég væri samt alveg til í að koma fyr til að ná brúðkaupinu hennar Guffu. En það er ekki allt hægt í þessum heimi. Ég er núna í óðaönn við að pakka niður búslóðinni því við verðum að losa íbúðina áður en við komum til Íslands. Við verðum svo á götunni svo að búslóðin fer bara í geymslu. Þegar við komum svo til baka frá Íslandi verðum við líklega bara að kúra hjá rónunum á Strikinu. Það er EKKI auðvelt að fá íbúð í Kaupmannahöfn! Ég ætla nú bara samt að tileinka mér hugarfar frændsystkina minna og segja bara " þetta reddast" og slá þessu upp í mátulegt kæruleysi. Við erum búin að liggja á netinu, hengja upp auglýsingar út um allan bæ, skrá okkur á biðlista eftir kollegie íbúðum fyrir löngu. Þetta hlýtur eithvað að fara að skýrast. Ef þið fréttið af einhverri íbúð í Kaupmannahöfn, þá megiði endilega láta okkur vita. Jæja hef þetta ekki lengra í bili. Sjáumst eftir helgi í sól og sumaryl sweetie pies!(ég lofa, ég kem með sólina og hitann í poka)
Sóla sólskinsbarn
Posted at 10:41 am by kellingarnar
Permalink
hæ elsku kellingar..
Langaði til að henda einhverju hérna inn bara svona til gamans. Ég missti nú af gæsuninni hennar Guffu sætu og heimta að fá að sjá einhverja myndir. Svo missi ég líka af brúðkaupinu hennar.. :( en ég heimta líka ógeðslega mikið af myndum þaðan! Ég veit ég tala fyrir Systu hönd líka.
Núna eru aðeins 12 dagar þangað til að ég legg af stað á vit ævintýranna í torevieja (ekki viss hvort þetta sé rétt skrifað) þar munum við dvelja í sumarhúsi sem pabbi lagði kaup á í vor.. gaman :) en ég mun líklega eyða miklum tíma þar næstu árin .. og jafnvel bjóða einhverjum heppnum kellingum með mér..
Partý-ið hjá Guðrúnu var voða skemmtilegt og gaman að sjá Jesper loksins. Mér finnst hann allt öðruvísi en ég ímyndaði mér..
En nú er nóg komið..
Ætla að taka smá Evu Maríu á þetta og benda öllum sem ekki hafa "already" að tjékka á honum Ray Lamontagne.. yndisleg tónlistin hans.

Hann Máni minn er að safna skotti.. þokkalega nettur á ðí ..

Svo er hann kominn með fullorðins þessi elska :)
Kær sumarkveðja
(í rigningarroki)
Ásgerður
Posted at 12:43 pm by kellingarnar
Permalink
Halló, ég vildi bara segja hvað mér þykir rosalega vænt um ykkur
og takk æðislega fyrir mig, þetta var yndislegasti dagurinn, án gríns hann gat ekki verið betri.
Vá hvað ég er heppin að eiga svona margar góðar vinkonur !!! Held stundum að maður geri sér ekki grein fyrir hvað maður er ríkur :)
Hlakka bara til að sjá ykkur næsta laugardag.
Kveðja Guffa (gæs)
Posted at 12:11 am by kellingarnar
Permalink
Jæja enn og aftur ein í köben.. Guðrún á íslandi og Solla veik, hvers á eg að gjalda;) EEEnn alltaf næ eg að redda mer á laugardagskvoldum! Thomas bauð mer í grill heim til sín í kvold þannig að eg fer þangað... kvíður pínu fyrir að mæta þarna ein! höfum alltaf verið nokkrar að mæta í partý með þeim strákum! vandró að koma þangað ein! hann eitthvað "svo ef þú vilt koma með einhvern með þer þá er það ekkert mál!!" eg eitthvað "uuu nei eg kem bara ein allir veikir eða á íslandi" hann eitthvað "ooookey
" hahhaha eg hef sjaldan verið jafn mikið nörd en síðan eg kom hingað til danmerkur! En einhvern timann verður maður að vera nörd líka! búin að vera alltof töff hingað til... :)
Annars er ekkert mikið að frétta bara vinna og langa að komast í BRÚÐKAUPIÐ hennar GUÐFINNU!!!!
ææææji mig langar svoooooooo!!
já guffa litla vnkona mín er að verða kona! Hverjum hefði dottið í hug að Guffa sæta mundi gifta sig fyrst af okkur?????? Ef hlutirnir halda svona áfram þá er ÉG bara næst held eg:) vá þá færu ALLIR vitlausu meginn framúr um morguninn og sérstaklega gaurinn
.... eða eitthvað
Svo var það náttla hróaskelda!! Þvílík upplifun! Sá the strokes og heyrði í Frans Ferdinand... fínt og rúmlega það, bjórinn var góður og kældi mann vel í sólinni! en núna þarf eg að fara að gera mig til og fara í sturtu inná baðinu mínu sem er minnst með peru í ljósinu!!! þori ekki að skipta um peru! eg er svo hrædd um að það séu tjungulur inní krónunni!!! kannski eg banka uppá hjá litla vini minum sem plöggaði netinu hingað fyrir mig.... hann var bara krútt!
Jæja im out
kveðja systa grenjuskjóða

p.s. mig langar í rauðhærðann kærasta!
p.s.s. heitt vatn frýs á undan köldu vatni!
p.s.s.s. eg sakna ykkar allra!
p.s.s.s.s. mer finnst gaman að gera svona pssss dæmi
p.s.s.s.s.s. en og tyve ni og halvfems hhahaha muniði:)
p.s.s.s.s.s.s. nei núna þarf eg i alvorunni að fara að drífa mig!!!!
Posted at 04:46 pm by kellingarnar
Permalink
Það er æðislegt veður núna ...
Guðrún er komin heim frá DK í bili ...
Grill, áfengir drykkir, fótbolti og góður félagsskapur í kvöld í Álfaheiði ...
Brúðkaup næstu helgi ...
Posted at 02:10 pm by kellingarnar
Permalink
Gönguklúbburinn Geirmundur Valtýs ætlar að taka létta göngu annað kvöld. Mikilvægt er að sem flestir klúbbfélagar mæti, svo að slúður verði í hámarki og gleðin í algleymi.
Gengið verður frá Sporthúsinu í Kópavogi, og mæting er kl. 20:00.
Sjáumst eldhressar, og ógisslega sætar..
Fyrir hönd Geirmundar Valtýs,
Regína
Posted at 02:57 pm by kellingarnar
Permalink
jææææææja.... eg er ein í Kaupmannahöfn!!! Allir á hróaskeldu:/ eeeeen eg er að fara í fyrramálið!!! (sunnudagsmorgun) vú hú (og katrín og eva líka ef þær hefðu tekið tilboðinu mínu) og verð sem sagt í einn sólahring, fínar hljómsveitir á sunnudagskvoldið, Frans Ferdinand og eg hélt The Strokes en eg fékk sms frá Guðrúnu í gærkvöldi að hún væri á The Strokes tónleikum þannig að eg veit ekki hvað fólk fær útúr því að ljúga að mer!!! Það er samt allt í lagi þekki örugglega eitt lag með þeim.... Annars er eg nú frekar að fara þangað til að fagna því að eg get drukkið bjor aftur og sýna það og sanna hvað eg get drukkið marga en samt bara orðið skemmtilegri og skemmtilegri:)
Laugardagur í dag og eg ekki þunn frekar en fyrri daginn.... fór í heimsón í gærkvöldi til vinafólks ömmu minnar og afa, já já afi þekkir fólk skal eg segja ykkur:) "Já já systa mín þú þekkir þau alveg! þú hefur meira að segja hitt þau!!! þau komu hingað í janúar 1984!!!!!!" (ástæðan fyrir upphrópunarmerkjunum eru fyrir þær sem hafa hitt afa minn, af því allt sem hann segir er sagt mjog hátt og skírt) en já eg fór sem sagt til þeirra á solröd strand hálftíma lestarferð einhvert norður, og þau buðu mer í mat og eftirrétt og voða kósý, fór sem sagt þangað til að fá undirskrift frá þeim í sambandi við eitthvað bull (segi betur seinna) og svo sýndu þau mer ströndina og síðan myndirnar frá íslandi síðan 1984 (man ýkt vel eftir því) og svoooo þegar kom að því að skrifa undir þessa pappíra þá bara sá ég hvergi hvar þau áttu að skirfa undir þannig að þessi bessaða ferð var svooooooo tilgangslaus!! mjog vandræðalegt!!!!
Jæja það er sól og blíða úti og eg ætla að fara niður í þvottahús og þvo fötin min! enda á eg tíma núna kl 11... og liggja svo aðeins úti í sólinni til að ná stelpunum sem eru búnar að vera úti alla helgina og rúmlega það!!! sí ja! endilega hringiði í mig í dag! eg hef ekkert betra að gera en að taka á móti símtölum:)
kv syssssssssssssshí blog....
Posted at 09:42 am by kellingarnar
Permalink